Skip to content
DiploTrack
66 of 140 FROM THIS SPEAKER

Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)

Iceland Press release: STATEMENT

2026-10-13 · data through unknown

IS · statement #44138 ·

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, tók þátt í óformlegum fundi þróunarmálaráðherra ESB-ríkja í Dyflinni 8. og 9. október, ásamt þróunarmálaráðherrum Noregs og Bretlands og ráðuneytisstjóra þróunarmálaráðuneytis Kanada. Írland, sem gegnir nú formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins , er eitt fárra ESB-ríkja sem hafa aukið framlög sín til þróunarsamvinnu. …
Full original text (IS, 1,247 Characters) ▾

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, tók þátt í óformlegum fundi þróunarmálaráðherra ESB-ríkja í Dyflinni 8. og 9. október, ásamt þróunarmálaráðherrum Noregs og Bretlands og ráðuneytisstjóra þróunarmálaráðuneytis Kanada. Írland, sem gegnir nú formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins , er eitt fárra ESB-ríkja sem hafa aukið framlög sín til þróunarsamvinnu. Á fundinum var m.a. rætt um stöðu og framtíð alþjóðlegrar þróunarsamvinnu sem stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum. Sárafátækt stendur í stað, átök og hungur fara vaxandi og áhrif loftslagsbreytinga verða sífellt alvarlegri. Á sama tíma mælist samdráttur í framlögum til opinberrar þróunaraðstoðar meiri en nokkru sinni fyrr en framlög drógust saman um 23% á milli áranna 2024 og 2025, en samdrátturinn var enn meiri þegar litið er til stuðnings við Afríku Sunnan Sahara. Samhæfing og samstarf líkt þenkjandi ríkja gegnir lykilhlutverki í að tryggja aukin áhrif þróunarsamvinnu og voru framtíðarhorfur í þróunarsamvinnu sem og leiðir til aðgerða meðal umræðuefna á fundinum. Tom Fletcher, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum (OCHA), fjallaði jafnframt um helstu áskoranir og umbætur á sviði mannúðaraðstoðar og þær flóknu mannúðarkrísur sem heimurinn stendur frammi fyrir.

Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾

Martin Eijölfsson, the Managing Director, participated in an informal meeting of EU Development Boards on Thursday 8 and 9 October, along with Norway and Britain's Advisory Committee for Development. Ireland, which is now a member of the European Union's Governing Council, is another few EU countries that have increased their contribution to development cooperation. The conclusion included the status and future of international development cooperation, which is facing increasing challenges. Seraphic activity occurs in the location, soils and soils that are growing and the effects of climate change are becoming increasingly severe. At the same time, an agreement was recommended in proposals for open development assistance more than once before the proposal reached 23% between 2024 and 2025, but it was even higher when little support is available to Africa Sunnan Sahara. Cooperation and cooperation are like a well - known government that plays an important role in ensuring greater impact on development collaboration, and they were future prospects for developing society which led to action among the subjects at work. Tom Fletcher, head of the United Nations Human Rights Council (OCHA), also discussed most concerns and improvements in humanitarian support as well as those faced by the global human rights crisis.

No tone or topic tags yet.