Skip to content
DiploTrack
78 of 140 FROM THIS SPEAKER

Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)

Iceland Press release: STATEMENT

2026-10-12 · data through 24 Nov 2026, 12:21 UTC

IS · statement #44067 ·

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Volker Türk, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem er í vinnuheimsókn á Íslandi. Ræddu þau á fundi sínum um þær áskoranir sem blasa við hvað varðar stöðu mannréttindamála og virðingu fyrir lýðræði og alþjóðalögum á heimsvísu, samstarf Íslands og skrifstofu mannréttindafulltrúa (e. …
Full original text (IS, 1,426 Characters) ▾

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Volker Türk, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, sem er í vinnuheimsókn á Íslandi. Ræddu þau á fundi sínum um þær áskoranir sem blasa við hvað varðar stöðu mannréttindamála og virðingu fyrir lýðræði og alþjóðalögum á heimsvísu, samstarf Íslands og skrifstofu mannréttindafulltrúa (e. Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR) og starf Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. „Það var ánægjulegt að taka á móti Volker Türk hér á Íslandi en við höfum átt góð samtöl á fundum okkar í Genf um mannréttindamál á heimsvísu og hlutverk Íslands. Við ræddum meðal annars stöðu mála í Íran, Afganistan, Súdan og Úkraínu, ásamt viðvarandi árásum og ofbeldi í Palestínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Á tímum bakslags gagnvart grundvallar mannréttindum og viðvarandi áskorana tel ég mikilvægt Ísland haldi áfram sem sterkur málsvari fyrir mannréttindi fyrir öll, allstaðar. Á meðan við eigum sæti í mannréttindaráðinu munum við vinna áfram á uppbyggilegan hátt og í samstarfi við önnur aðildarríki hvað varðar að standa vörð um mannréttindi og alþjóðakerfið.“ Ísland veitir árleg óeyrnamerkt kjarnaframlög til OHCHR í gegnum rammasamning sem gildir til loka árs 2028. Þá eru einnig veitt framlög til þriggja valinna sjóða stofnunarinnar sem tengjast allsherjarúttektum og réttindum hinsegin fólks.

Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾

Today, the Turkish Katrin Gunnars Dot of National Council met with Volker Turkey, United Nations Human Rights Commissioner for Labour in Iceland. They discussed their findings on issues of human rights and respect for national or international laws in the world, Iceland’s cooperation with the Office of Human Rights (E. Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR) and Iceland’s work on human rights in the UN. “ It was a pleasure to meet the people of Turkey here in Iceland, but we’ve had good results from our findings at Genf on human rights issues around the world and the role of Iceland. Among other things, we discussed the state of affairs in Iran, Afghanistan, Sudan and Ukraine, along with persistent attacks and violence in Palestine," says Turkish President Katrin Gunnarsdot. “In retrospect, the fundamental principles of human rights and persistent complaints are important to me. I believe that Iceland continues to be a major issue for all, everywhere. While we are in the Human Rights Council, we will continue to work constructively and in cooperation with other sovereign states as regards protection of human rights and international systems. “ Iceland provides annual unprecedented nuclear advances to OHCHR through a framework that is valid until late in 2028. They are also presented to the three chosen branches of this agency, which are associated with all - year and rights of other peoples.

No checked position or topic tag for this statement yet.