Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)
Iceland Press release: STATEMENT
2026-09-25 · data through unknown
IS · statement #43960 ·
- Who
- Iceland (Ministry for Foreign Affairs) · Iceland
- Topic
- No topic assigned
- Event
- No event linked
No claim toward a country was found in this statement.
Positions are machine-coded from the highlighted sentence. How claims are read and which are shown
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flytur ávarp Íslands í leiðtogaumræðu áttugasta og fyrsta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York síðdegis á morgun, laugardag. Þorgerður Katrín hefur í vikunni tekið þátt í fjölmörgum fundum og viðburðum í tengslum við ráðherraviku allsherjarþingsins en jafnan er mikið um að vera þegar þingið er sett ár hvert. …Full original text (IS, 1,478 Characters) ▾
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flytur ávarp Íslands í leiðtogaumræðu áttugasta og fyrsta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York síðdegis á morgun, laugardag. Þorgerður Katrín hefur í vikunni tekið þátt í fjölmörgum fundum og viðburðum í tengslum við ráðherraviku allsherjarþingsins en jafnan er mikið um að vera þegar þingið er sett ár hvert. „Á þeim umrótatímum sem við nú lifum er gríðarlega mikilvægt fyrir Ísland að taka virkan þátt í samstarfi þjóða og við gætum hagsmuna okkar Íslendinga með þeim hætti,“ segir Þorgerður Katrín. „Ég hef tekið þátt í viðburðum í vikunni sem snerta sumar af erfiðustu áskorunum samtímans og átt fjöldamörg tvíhliða samtöl, ekki aðeins á formlegum fundum heldur á göngunum einnig. Það gefst hvergi betra færi á þessháttar samtali, sem við þurfum að vera hluti af, og í leiðtogaviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna eins og hefur sannast sem aldrei fyrr.“ Utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra voru viðstaddar opnun ráðherravikunnar á þriðjudag líkt og greint hefur verið frá . Forsætisráðherra sat einnig sérstakan leiðtogafund um tveggja ríkja lausnina svonefndu milli Ísraels og Palestínu sem forystumenn Bretlands, Frakklands, Kanada og Sádí Arabíu boðuðu til og Þorgerður Katrín flutti síðan ávarp á utanríkisráðherrafundi ríkjabandalags um sömu mál í gær, fimmtudag. Þorgerður Katrín sótti enn fremur ráðherrafund stuðningsríkja Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).
Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾
The Turkish Katrin Gunnarsdot of the National Council of State is moving the flag of Iceland in the 18th and first U.S. Army talks on Sunday morning. During the week, dry Katrin has been involved in many findings and events related to general military operations but is very similar when weighing every year. “ At the time we are now living, it is extremely important for Iceland to play an active part in international cooperation and we can assist our Icelandic citizens in their ways, ” says Torderdi Katrin. “ I’ve been involved in events during the week that confront some of my most difficult challenges at the same time and have many doubts, not only on formal findings but also on trips. There is no better way for this kind of meeting to be part of, and in the year leading up to the United Nations as it has never been. “ The opening of the Council on Wednesday was similar to what has been reported. The Presbyterian Council also set up a special panel of leaders on the two solutions between Israel and Palestine, which the presidents of Britain, France, Canada and Saudi Arabia had preached to and then the Turkish troops moved into the country’s state-of - law coalition against the same issues yesterday, Friday. The Turkish Katrin continued to support the United Nations (UNRWA) Council of State Support.