Skip to content
DiploTrack
2 of 64 FROM THIS SPEAKER

Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)

Iceland Press release: STATEMENT

2026-11-18 · data through unknown

IS · statement #37422 ·

Mathias Cormann, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sótti Ísland heim dagana 15.-17. nóvember. Cormann var staddur hér á landi í tengslum við Heimsþing kvenleiðtoga (e. Reykjavík Global Forum) þar sem hann flutti erindi og tók þátt í nokkrum viðburðum. Cormann átti einnig fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra þar sem þau ræddu þróun utanríkisviðskipta og efnahagsmála og helstu viðfangsefni stofnunarinnar um þessar mundir. …
Full original text (IS, 1,082 Characters) ▾

Mathias Cormann, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sótti Ísland heim dagana 15.-17. nóvember. Cormann var staddur hér á landi í tengslum við Heimsþing kvenleiðtoga (e. Reykjavík Global Forum) þar sem hann flutti erindi og tók þátt í nokkrum viðburðum. Cormann átti einnig fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra þar sem þau ræddu þróun utanríkisviðskipta og efnahagsmála og helstu viðfangsefni stofnunarinnar um þessar mundir. Ræddu þau sérstaklega um úrbætur sem úkraínsk stjórnvöld hafa náð fram með innleiðingu staðla OECD og nú síðast með aðild sinni að samningi stofnunarinnar gegn mútugreiðslum. Þá sat Cormann hádegisverðarfund með spretthópi sem utanríkisráðherra skipaði í október síðastliðnum og ætlað er að fara yfir þróun mála innan alþjóðaviðskiptakerfisins, stöðu Íslands innan þess og hvaða tækifæri og áskoranir kunni að liggja fyrir í því sambandi. Á fundinum fór Cormann yfir stöðu alþjóðaviðskipta og hvað Ísland gæti að mati stofnunarinnar gert til að bregðast við þeirri stöðu og bæta viðskiptaumhverfi fyrirtækja.

Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾

Mathias Cormann, Managing Director of the Efnahag and Development Agency (OECD), said that Iceland was home in 15 days. Cormann was established here on the ground in connection with World Women's Rights (e.g. Reykjavik Global Forum) where he moved and participated in several events. Cormann also met with Turkish Katrina Gunnarsdot, an international councilman who discussed the development of foreign trade and economic affairs as well as its main subject. In particular, they discussed the improvements achieved by Ukraine’s government at the beginning of OECD and now, with their support for its cooperation against counter-substantiation. At that time Cormann set up a team of exploratory international councils in October and is planning on developing issues within the International Trade System, Iceland’s position within it and what opportunities and prospects could exist in this regard. At the end, Cormann went over international trade and what Iceland may appreciate in order to adapt to that situation and improve business environment.

No tone or topic tags yet.