Skip to content
DiploTrack
9 of 64 FROM THIS SPEAKER

Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)

Iceland Press release: STATEMENT

2026-11-16 · data through unknown

IS · statement #37408 ·

Norðurlöndin og Suður-Afríka kynntu í dag nýtt langtímasamstarf til að efla kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi (SRHR). Samstarfið var kynnt á Kaupmannahafnarfundinum ( Copenhagen Summit ), sem hófst í dag, en fundurinn er haldinn á vegum danskra stjórnvalda og Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmið hans er að efla alþjóðlegan stuðning við jafnrétti kynjanna og réttindi kvenna og stúlkna. …
Full original text (IS, 1,276 Characters) ▾

Norðurlöndin og Suður-Afríka kynntu í dag nýtt langtímasamstarf til að efla kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi (SRHR). Samstarfið var kynnt á Kaupmannahafnarfundinum ( Copenhagen Summit ), sem hófst í dag, en fundurinn er haldinn á vegum danskra stjórnvalda og Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmið hans er að efla alþjóðlegan stuðning við jafnrétti kynjanna og réttindi kvenna og stúlkna. Meginmarkmið nýja samstarfsins er að tryggja aukið fjármagn til málaflokksins og stuðla að uppbyggingu sjálfbærs alþjóðlegs fjármögnunarkerfis. Stefnt er að því að samstarfið þróist í víðtækt alþjóðlegt bandalag þar sem ríkisstjórnir, góðgerðarsjóðir, þróunarfjármögnunarstofnanir, frjáls félagasamtök og einkaaðilar sameinast um að efla stuðning við kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi. Samstarfið fellur vel að áherslum Norrænu ráðherranefndarinnar, Pushing for Progress , sem miðar að því að efla alþjóðlegt samstarf og pólitískan stuðning við jafnrétti kynjanna, réttindi kvenna og stúlkna og réttindi hinsegin fólks. Það styður jafnframt við Kaupmannahafnarákall um jafnrétti kynjanna og réttindi kvenna og stúlkna . Samstarfið er sett á laggirnar á tímum vaxandi andstöðu við jafnrétti kynjanna og rétt einstaklinga til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigin líkama.

Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾

Northern and South Africa today has a new long-term work to promote gender equality and fertility (SRHR). The cooperation was known on the Copenhagen Summit, which is being launched today but has been found on the way to the Danish government and Northern Council. His goal is to provide international support for gender equality and women’s rights. The main objective of the new cooperation is to ensure an increase in financial resources for its portfolio and support building up a self-contained international monetary system. It is intended that cooperation be developed in a broad international association where governments, good offices, development agencies, free associations and private individuals are united to support gender equality and fertility. Cooperation is a good way to focus on the interests of Northern Councillor Pushing for Progress, who is concerned about international cooperation and political support for gender equality, women’s rights and girls’ rights. It also supports the Copenhagen Declaration on Gender Equality and Women’s Rights. Cooperation is based on the laws of time - consuming resistance to gender equality and human rights in order to make their own decisions.

No tone or topic tags yet.