Skip to content
DiploTrack
13 of 64 FROM THIS SPEAKER

Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)

Iceland Press release: STATEMENT

2026-11-12 · data through unknown

IS · statement #37404 ·

Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu um eflingu norræns varnarsamstarfs undir merkjum NORDEFCO í Osló í dag og í gær. Málefni Atlantshafsbandalagsins, vaxandi framlög til varnarmála og aukin fælingar- og varnargeta bandalagsins, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, sem og ákvörðun um vinnu við samning um varnarsamvinnu Norðurlandanna, voru meðal þess sem rætt var á fundinum. …
Full original text (IS, 1,466 Characters) ▾

Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna funduðu um eflingu norræns varnarsamstarfs undir merkjum NORDEFCO í Osló í dag og í gær. Málefni Atlantshafsbandalagsins, vaxandi framlög til varnarmála og aukin fælingar- og varnargeta bandalagsins, áframhaldandi stuðningur við Úkraínu, sem og ákvörðun um vinnu við samning um varnarsamvinnu Norðurlandanna, voru meðal þess sem rætt var á fundinum. Yfirmenn herafla Norðurlandanna tóku þátt í hluta fundarins ásamt Nick Perry hershöfðingja, sem er nýr yfirmaður aðgerðarstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk í Bandaríkjunum. Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna kemur fram að nýr kafli í norræna varnarsamstarfinu sé að hefjast, með aukinni ábyrgð Evrópu á vörnum álfunnar. Norðurlöndin eru þar ekki undanskilin og taka sinn skerf af byrðaskiptingunni innan Atlantshafsbandalagsins, og því var ákveðið á fundinum að hefja vinnu við gerð norræns varnarsamstarfssamnings. Slíkur samningur kemur til með að skerpa á lagalegri umgjörð norrænnar varnarsamvinnu og renna þannig styrkari stoðum undir vaxandi samstarf milli norrænu ríkjanna og eflir framlag þeirra til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins. Þá var einnig haldinn sameiginlegur fundur NORDEFCO og Haga-samstarfsins svokallaða, sem er samstarf Norðurlandanna er lýtur að almannavörnum. Þar var lögð sérstök áhersla á viðnámsþrótt samfélaga, en Norðurlöndin leggja vaxandi áherslu á að efla samstarf og samskipti sín á milli á sviði almannavarna og áfallaþols.

Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾

The Northern Hemisphere Councils found the creation of North African defence cooperation under NORDEFCO marks in Oslo today and yesterday. The Atlantic Community's measures, its growing proposals for protection and the increase in awareness-raising of the Union, continued support to Ukraine, which included a decision on cooperation with Northern Ireland. The Northern Hemisphere took part in the founding of Nic Perry, a new director general of the Atlantic Union’s Norfolk U.S. The joint declaration of the Kingdom shows that a new chapter in Northern Security Cooperation is being launched, with an increased European responsibility for protecting arms. The Northern Hemisphere is not isolated there, so it was decided to start work in the form of a North African defence cooperation. Such a relationship is aimed at strengthening the legal environment in which Northern Security Cooperation is established and thus strengthening our cooperation between the Nordic countries and their proposals for joint protection of the Atlantic Union. There was also a common view of the cooperation between NORDEFCO and Haga so called, which has to be achieved in general. There was a special emphasis on the development of societies, but Northern Ireland is increasingly concerned about putting together cooperation and collaboration between citizens and refugees.

No tone or topic tags yet.