Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)
Iceland Press release: STATEMENT
2026-11-04 · data through unknown
IS · statement #37391 ·
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og netöryggissveitin CERT-IS hafa fengið aðgang að sérhæfðu netöryggislíkani frá OpenAI. Líkanið er hluti af Daybreak, framtaki OpenAI á sviði netvarna. Þar sem slík tækni getur nýst bæði til varna og árása er aðgangur að líkaninu aðeins veittur að undangengnu mati, í gegnum Government Trusted Access for Cyber (GTAC). …Full original text (IS, 1,283 Characters) ▾
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og netöryggissveitin CERT-IS hafa fengið aðgang að sérhæfðu netöryggislíkani frá OpenAI. Líkanið er hluti af Daybreak, framtaki OpenAI á sviði netvarna. Þar sem slík tækni getur nýst bæði til varna og árása er aðgangur að líkaninu aðeins veittur að undangengnu mati, í gegnum Government Trusted Access for Cyber (GTAC). Markmiðið er að kanna hvernig gervigreind getur stutt sérfræðinga við netvarnir, meðal annars við yfirferð kóða, greiningu veikleika og forgangsröðun viðbragðs við þeim, mat á ógnum og viðbrögð við netöryggisatvikum. Líkanið getur til dæmis bent á veikleika í kerfum og aðstoðað við að útbúa og prófa lagfæringar, svo hægt sé að loka öryggisholum áður en óprúttnir aðilar finna þær og misnota. Með aðganginum gefst Umbru og CERT-IS tækifæri til að byggja upp þekkingu og reynslu af nýrri tækni sem getur styrkt netvarnir og öryggi stafrænnar þjónustu ríkisins sem almenningur notar daglega. Sérfræðingar stýra notkun líkansins, meta niðurstöður þess og taka allar ákvarðanir um aðgerðir. Rík áhersla verður lögð á ábyrga og örugga nýtingu tækninnar. Notkunin er bundin við skilgreind verkefni í þágu netvarna, háð skýrum öryggiskröfum og einskorðast við þau kerfi og innviði sem viðkomandi hafa heimild til að vinna með.
Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾
Umbra - the service location of the Governing Council and CERT-IS network interface have been accessed to special system security from OpenAI. The body is part of Daybreak, an openAI on the network. Since such techniques can be used both for protection and concern, it is possible that the body only knows how to avoid excessive assessment through Government Trusted Access for Cyber (GTAC). The aim is to examine how technology can support networks, including through code training, analysis of weaknesses and pre-dispositions associated with them, risk assessment and response to network surveillance. For example, the body may indicate system failure and assist in preparing or testing legislation so that safety cells can be closed before untreated adults discover them and misused. With access, Umbru and CERT-IS are given the opportunity to build up knowledge and experience of a new technology that can strengthen networks and security of digital service for the country which is used daily. Experts control the body’s use, assess its results and take all decisions on action. The state of stress will be responsible and secure in use. The use is based on defined network tasks, specific safety requirements and are subject to the system and interfaces that will be used.
No tone or topic tags yet.