Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)
Iceland Press release: STATEMENT
2026-11-02 · data through 24 Nov 2026, 01:50 UTC
IS · statement #37388 ·
Varnarmálafulltrúi Íslands í Bandaríkjunum hefur undirritað samkomulag við Ted Stevens Center for Arctic Security Studies (TSC) í Alaska um þátttöku Íslands í starfsemi miðstöðvarinnar.
Með samkomulaginu tekur Sturla Sigurjónsson sendiherra við hlutverki norðurslóðaráðgjafa (e. Arctic Chair) fyrir hönd Íslands hjá miðstöðinni og fær sæti í ráðgjafaráði hennar, ásamt fulltrúum annarra norðurskautsríkja utan Rússlands, og tekur virkan þátt í stefnumótun og samstarfi um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. …Full original text (IS, 969 Characters) ▾
Varnarmálafulltrúi Íslands í Bandaríkjunum hefur undirritað samkomulag við Ted Stevens Center for Arctic Security Studies (TSC) í Alaska um þátttöku Íslands í starfsemi miðstöðvarinnar. Með samkomulaginu tekur Sturla Sigurjónsson sendiherra við hlutverki norðurslóðaráðgjafa (e. Arctic Chair) fyrir hönd Íslands hjá miðstöðinni og fær sæti í ráðgjafaráði hennar, ásamt fulltrúum annarra norðurskautsríkja utan Rússlands, og tekur virkan þátt í stefnumótun og samstarfi um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. TSC er þekkingar- og fræðasetur á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins og sinnir rannsóknum, fræðslu og samstarfi um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. Þá er miðstöðin mikilvægur vettvangur fyrir samstarf sérfræðinga frá Bandaríkjunum, aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins og öðrum samstarfsríkjum. Samstarfið styrkir tengsl Íslands við Bandaríkin og undirstrikar mikilvægi landsins í öryggis- og varnarmálum á norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi.
Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾
Iceland’s National Warning Centre in the United States has signed an agreement with Ted Stevens Center for Arctic Security Studies (TSC) in Alaska on Ireland's participation in central trade. The Society takes the lead in the work of Jehovah’s Witnesses (E. Arctic Chair) for Iceland's hand at the centre and will be in its advice, along with officials from other northern states outside Russia, and will take part in a course of action and cooperation on security and protection measures in Northern Hemisphere. TSC is an expert and scientist on the way to U.S. Security Council, and is responsible for research, education and cooperation in Northern Hemispheres. It is therefore an important instrument for cooperation between experts from the United States, the sovereign states of the Atlantic and other co-operation countries. Cooperation strengthens Iceland's relationship with the United States and highlights its importance in security and safety issues on the North Atlantic and North Atlantic.
No tone or topic tags yet.