Skip to content
DiploTrack
35 of 64 FROM THIS SPEAKER

Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)

Iceland Press release: STATEMENT

2026-10-28 · data through unknown

IS · statement #37378 ·

Sjúkrahúsið er fullbúið nauðsynlegum lækningatækjum og búnaði til að veita sérhæfða fæðingarþjónustu. Þetta er fyrsta heilbrigðisstofnunin á svæðinu sem getur sinnt bráðakeisaraskurðum og öðrum sérhæfðum aðgerðum vegna fylgikvilla á meðgöngu og í fæðingu. Þá verður spítalinn búinn sólarorkukerfi til að tryggja áreiðanlega raforku sem og sólardrifnu vatnskerfi. …
Full original text (IS, 1,394 Characters) ▾

Sjúkrahúsið er fullbúið nauðsynlegum lækningatækjum og búnaði til að veita sérhæfða fæðingarþjónustu. Þetta er fyrsta heilbrigðisstofnunin á svæðinu sem getur sinnt bráðakeisaraskurðum og öðrum sérhæfðum aðgerðum vegna fylgikvilla á meðgöngu og í fæðingu. Þá verður spítalinn búinn sólarorkukerfi til að tryggja áreiðanlega raforku sem og sólardrifnu vatnskerfi. Opnun sjúkrahússins er sérstaklega mikilvæg fyrir konur og börn á Makanjira svæðinu, þar sem aðgengi að sérhæfðri fæðingarþjónustu hefur verið takmarkað. Alls er reiknað með að um 6.700 fæðingar verði á sjúkrahúsinu ár hvert og í heildina mun spítalinn þjónusta 155.000 manns. Hingað til hafa konur sem hafa þurft á bráðaaðgerðum að halda orðið að ferðast langar vegalengdir til héraðshöfuðborgarinnar til að fá viðeigandi þjónustu, oft við mjög erfiðar aðstæður. Með tilkomu spítalans verður hægt að veita þessa lífsnauðsynlegu þjónustu nær heimabyggð. Malaví hefur um langt árabil verið samstarfsland í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands en landið er eitt hið fátækasta í heimi. Ísland hefur stutt við uppbyggingu á grunnþjónustu á sviði heilbrigðisþjónustu, menntunar og vatns- og hreinlætismála auk sérstakrar áherslu á umhverfis- og loftslagsmál. Eru þessar áherslur í samræmi við stefnu um alþjóðalega þróunarsamvinnu Íslands sem Alþingi hefur samþykkt. Þá grundvallast þróunarsamvinnuverkefni Íslands á samþykktum fjárlögum.

Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾

The hospital is equipped with the necessary medical facilities and has been designed to provide special nutritional services. This is the first health institution in this area that can cause emergency procedures and other special actions due to complications from pregnancy or childbirth. The hospital will then be equipped with a solar system to ensure an accurate description of the sun’s water supply. The opening of the hospital is particularly important for women and children in Makanjira, since special maternity services are limited. It is estimated that about 6,700 births will be in the hospital every year and that the entire hospital will serve 155,000 people. As a result, women who have had to take urgent action are often in dire straits to the capital city for appropriate service, often under difficult circumstances. At the hospital’s arrival, these vital services must be provided near home. Malawi has been the world’s second - largest developing country for many years. Iceland has supported the construction of basic services in health care, education and water treatment as well as special emphasis on environmental/air affairs. These concerns are in line with the International Development Cooperation Plan of Iceland, which has been approved by the United Nations. It is therefore the basis for Iceland’s development cooperation in agreed funds.

Tone toward targets (1)

How this statement speaks of each target it names, read by a model from the evidence sentence.

  • Positive toward Malawi“Malaví hefur um langt árabil verið samstarfsland í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands en landið er eitt hið fátækasta í heimi.”