Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)
Iceland Press release: STATEMENT
2026-10-21 · data through unknown
IS · statement #37366 ·
Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, vekur athygli á því að tveir mjög alvarlegir veikleikar hafa fundist í PHP, forritunarmáli sem knýr mikinn fjölda vefsíðna. Þar á meðal eru margar síður sem byggja á WordPress, Drupal og Joomla sem öll eru skrifuð í PHP forritunarmálinu. Gallarnir gætu gert árásaraðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum í gegnum internetið. …Full original text (IS, 1,090 Characters) ▾
Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, vekur athygli á því að tveir mjög alvarlegir veikleikar hafa fundist í PHP, forritunarmáli sem knýr mikinn fjölda vefsíðna. Þar á meðal eru margar síður sem byggja á WordPress, Drupal og Joomla sem öll eru skrifuð í PHP forritunarmálinu. Gallarnir gætu gert árásaraðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum í gegnum internetið. Fyrirtæki og stofnanir sem reka PHP-kerfi ættu að setja upp öryggisuppfærslur um leið og þær verða aðgengilegar en reiknað er með þeim klukkan 14:00 í dag, 21. október. Ef það er ekki mögulegt getur þurft að takmarka aðgang að kerfum eða taka þau niður tímabundið. Nágrannalönd okkar hafa gripið til ýmissa ráðstafana, þar má nefna að Hollendingar tóku niður vefsíðu auðkennisþjónustu landsins, stóra fréttasíðu og einhverjar síður þingsins. Finnland ætlar að gera slíkt hið sama. Almenningur gæti orðið var við tímabundnar truflanir á sumum vefþjónustum á meðan unnið er að uppfærslum og vörnum. Nánari upplýsingar má finna í frétt á vef CERT-IS hér: https://cert.is/frettasafn/alvarlegir-veikleikar-i-php/
Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾
The network security of the Icelandic government, CERT-IS, is concerned that two very serious problems have been identified in PHP, a program model that has a large number of websites. It includes many pages based on WordPress, Drupal and Joomla that are all written in the PHP software. The dangers of being infected can make it difficult to get control over harmful systems on the Internet. Businesses and institutions that run the PHP system should set up safety procedures on their way to be available but are calculated at 14:00 a.m. today, October 21. If it is not possible, we may need to limit access to or temporarily download our systems. Our neighboring countries have taken steps to make it possible for Dutch - speaking people to take down their visas, large news pages, and some form of pregnancy. Finland is going to do the same. The public may have had temporary problems with some web services while in the process of upgrading and protecting. Detailed information can be found on the website CERT-IS here:
No tone or topic tags yet.