Iceland (Ministry for Foreign Affairs) (ISL)
Iceland Press release: STATEMENT
2026-10-14 · data through 24 Nov 2026, 08:30 UTC
IS · statement #37351 ·
Alþjóðleg ráðstefna um plastmengun í hafi, sem fram fer í Hörpu dagana 20. – 22. október nk., verður sett í næstu viku. Til að vekja athygli á ráðstefnunni og því aðsteðjandi vandamáli sem lífríki og vistkerfi heimsins standa frammi fyrir vegna plastmengunar, hyggst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra taka þátt í átakinu Strandhreinsun Íslands í Reykjavík á morgun. …Full original text (IS, 1,410 Characters) ▾
Alþjóðleg ráðstefna um plastmengun í hafi, sem fram fer í Hörpu dagana 20. – 22. október nk., verður sett í næstu viku. Til að vekja athygli á ráðstefnunni og því aðsteðjandi vandamáli sem lífríki og vistkerfi heimsins standa frammi fyrir vegna plastmengunar, hyggst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra taka þátt í átakinu Strandhreinsun Íslands í Reykjavík á morgun. Um er að ræða átak á vegum íslenskra stjórnvalda til að hreinsa strandlengju landsins af plasti og öðrum úrgangi með kerfisbundnum hætti. Vaxandi plastmengun í hafi ógnar vistkerfum sjávar og sjálfbærri nýtingu hafsins. Ómengað haf er undirstaða lífríkis sjávar en í dag finnst plast alls staðar í hafinu; fljótandi á yfirborðinu, marandi í vatnssúlunni, á sjávarbotninum og í sjávardýrum. Örplast er komið inn í fæðukeðjuna og greinist í manneskjum. Til að takast á við plastmengun og vernda vistkerfi sjávar, verja lýðheilsu og tryggja alþjóðlega velsæld er nauðsynlegt að auka skilning á vandanum og umfangi hans. Von er á um 250 vísindamönnum, stefnumótendum og leiðtogum úr atvinnulífinu til landsins, frá rúmlega 30 löndum, til að ræða nýjustu rannsóknir, mögulegar lausnir og miðla góðum starfsháttum og nýjungum. Þetta er þriðja alþjóðlega ráðstefnan um plastmengun í hafi sem ríkisstjórn Íslands boðar til í samvinnu við innlenda og alþjóðlega samstarfsaðila, en fyrri ráðstefnur einblíndu á stöðu mála í norðurhöfum.
Machine translation (english, opus-mt:mul-en), not checked by a person ▾
International Maritime Safety Council, held in Höppa on 20 days. - October 22nd. , will be set next week. In order to raise awareness of the Council’s existence and its existing problem that the world’s life - style and welfare system are facing because of plastic age, Turkish President Katrin Gunnarsdott of the United Nations High Commissioner for Foreign Affairs has been involved in the report on Iceland’s Coastal Clearance in Reykjavik tomorrow. The measures are being taken by the Icelandic authorities to clear the country’s coast of plastic and other solutions in a systematic manner. The increasing amount of plastic in the sea threatens marine habitats and improved maritime use. There are plenty of living water under the sea, but today plastic is found everywhere at sea; running on the surface, swimming in the water, surfing at sea and at sea animals. An eye patch is inserted into the food chain and is detected in humans. To cope with plastic pollution and to protect the marine environment, protecting public health and ensuring international welfare is essential for increasing awareness of its problem and scope. It is expected that 250 scientists, trainees and guides from their country’s field of work, from about 30 countries, will discuss the latest research, possible solutions and average job opportunities and innovation. This is the third international convention on plastic mining, which the Government of Iceland has announced in cooperation with domestic and international co-operations, but first councils are focused on matters in Northern Hemisphere.
No tone or topic tags yet.